Aðalskipulag gefur heildarmynd af fyrirkomulagi byggðar og innviða í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Þar kemur m.a. fram hvar landnotkun af hverju tagi er ætlað pláss, t.d. hvar iðnaður getur komið sér fyrir, hvaða svæði eru ætluð fyrir íbúðarbyggð og hvar ekki er gert ráð fyrir neinni mannvirkjagerð. Mótun aðalskipulagsins er líka mikilvægur vettvangur samtals íbúa um þróun sveitarfélagsins og um málamiðlanir milli ólíkra hagsmuna.
Svæðisskipulag er sameiginlegt skipulag tveggja eða fleiri sveitarfélaga, aðalskipulag gefur heildarmynd af einu sveitarfélagi, rammaskipulag gefur yfirsýn yfir svæði eða málaflokk innan eins sveitarfélags og deiliskipulag kveður á um mannvirkjagerð á tilteknum reit.
Já. Það er skylda hvers sveitafélags að gera aðalskipulag og það á að ná til alls lands innan sveitarfélagamarka.
Sveitastjórn ber ábyrgð á gerð aðalskipulags en veitir skipulagsnefnd umboð til að móta tillögur í samráði við íbúa og aðra hagsmunaaðila.
Aðalskipulag er í gildi í 12 - 20 ár. En við upphafs hvers kjörtímabils tekur sveitastjórn afstöðu til þess hvort endurskoða þurfi gildandi aðalskipulag.
Við endurskoðun aðalskipulags er farið eftir lögboðnu ferli skv. skipulagslögum . Fyrsta skrefið er að skipulagsnefnd tekur saman skjal sem kallast lýsing. Þar koma fram meginatriði sem endurskoðunin mun taka á og hvernig samráði við almenning verður háttað. Eftir að lýsingin hefur verið samþykkt af sveitastjórn er hún kynnt opinberlega og almenningur fær tækifæri til að koma á framfæri ábendingum. Skipulagsstofnun og ýmsar fagstofnanir veita einnig umsögn á þessu stigi.
Næst vinnur skipulagsnefnd tillögu að aðalskipulagi í samræmi við lýsinguna og tekur tillit til ábendinga. Haft er samráð við íbúa og aðra hagsmunaaðila. Þegar mótun tillögunnar er langt komin er hún borin undir íbúa og þeir fá aftur tækifæri til að benda á það sem betur má fara. Þegar endaleg tillaga að aðalskipulagi liggur fyrir sendir sveitastjórnin hana til Skipulagsstofnunnar til athugunar. Þegar skipulagsnefnd hefur unnið úr athugasemdum Skipulagsstofnunnar er aðalskipulagið auglýst og öllum gefinn 6 vikna frestur til að skila skriflegum athugasemdum.
Þegar búið er að afgreiða athugasemdir og umsagnir gengur skipulagsnefnd frá endanlegu aðalskipulagi sem sveitastjórn þarf síðan að samþykkja. Aðalskipulag tekur gildi þegar samþykki sveitarstjórnar og staðfesting Skipulagsstofnunar hefur verið auglýst í Stjórnartíðindum.
Almenningur og aðrir hagsmunaaðilar fá tækifæri til að koma með athugasemdir á ýmsum stigum:
Við kynningu lýsingar
Þegar tillaga er í mótun og lögð fram til kynningar
Við auglýsingu fullbúinnar tillögu
Á fundum sem haldnir eru eða aðrar leiðir notaðar til að fá fram sjónarmið íbúa og annarra hagsmunaaðila. Í þessu tilfelli er það gert með spurningakönnunum til íbúa, landeigenda og fyrirtækja.
Skipulagslög nr. 123/2010 lýsa öllum meginreglum um gerð aðalskipulags en skipulagsreglugerð nr. 90/2013 útfærir lagaákvæðin nánar. Skipulagsstofnun ber ábyrgð á framfylgd laganna og hefur eftirlit með því að aðalskipulag sé rétt fram sett. Að auki þarf að fylgja ákvæðum ýmissa annarra laga, t.d. um náttúruvernd, umhverfismat áætlana og fleiri.
Já og það er eðlilegt að gera þurfi breytingar á gildandi aðalskipulagi þegar nýjar þarfir eða kringumstæður koma upp. Við breytingu er einnig haft samráð við íbúa eins og áður er lýst og þannig tryggt að þeir geti komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Slíkt tekur tíma og því má búast við að breyting á aðalskipulagi taki 4-6 mánuði. Það er því mikilvægt að huga að skipulagsmálum tímanlega þegar mannvirkjagerð er fyrirhuguð sem ekki er þegar gert ráð fyrir í gildandi skipulagi.
Stefnu sveitarstjórnar í ýmsum málefnum er lýst í greinargerð (þ.e. skýrsla) og þar koma einnig fram skipulagsákvæði (n.k. leikreglur) fyrir tilgreinda staði og svæði. Afmarkanir þessara staða og svæða koma fram á skipulagsuppdrætti (korti), þar sem litir og tákn gefa til kynna hvers konar landnotkun er á ráðgerð.
Nánari upplýsingar um aðalskipulag almennt er að finna á vef Skipulagsstofnunar: https://www.skipulag.is/skipulagsmal/adalskipulag
Ef þú hefur spurningu um endurskoðun aðalskipulags Fjarðabyggðar sérstaklega er rétt að beina henni til skrifstofu Þingeyjarsveitar í síma 512 1800 eða í tölvupósti til thingeyjarsveit@thingeyjarsveit.is.